Garðaprjón
Share
Garðaprjón - handavinnusamvera á Austurvelli eru prjóna og handavinnustundir sem munu fara fram í Austurvelli þar sem öllum sem hafa áhuga gefst tækifæri til að setjast niður og prjóna, vefa, hnýta, hekla, sauma út eða bara hvað sem er tengt þráðum og sköpun með textíl.
Þannig verða skapaðar fallegar samverustundir með óvæntri samsetningu fólks á öllum aldri. Alls konar efniviður verður á staðnum hverju sinni. Einnig er velkomið að mæta með sitt eigið prjón eða aðra handavinnu og taka þátt í stundinni.
Hvert skipti er tvær klukkustundir í senn frá kl. 15-17 og verður hisst 4 sinnum í sumar: miðvikudagur 24. Júní, mánudagur 29. júní, fimmtudagur 13. ágúst og miðvikudagur 19. ágúst
Handavinna er heilandi gjörningur og sé hún iðkuð í hóp eða samneyti með öðrum eykst mátturinn og töfrarnir. Sköpun eykur vellíðan og að sjá verk verða til í þínum eigin höndum er valdeflandi og ánægjulegt. Hugmyndin með Garðaprjón er að leyfa flæði hugans, hjartans og handanna að skapa og treysta því að útkoman verði sú sem hún á að vera. Þetta er frelsandi gjörningur sem róar taugakerfið en örvar jákvæða virkni í heilanum.
Hlökkum til að sjá ykkur á Austurvelli í sumar.
Hera, Hildigunnur & Hrafnhildur
Hera, Hildigunnur & Hrafnhildur
------------------------------------------------------------------
Flóð og fjara
Hera Sigurðardóttir er eigandi hannyrðastúdíósins Flóðs & fjöru. Þar framleiðir hún vörur úr textíl ásamt því að halda alls konar handavinnunámskeið en flest eru tengd macramé hnýtingum. Hera er með menntun í mannfræði og hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og ungmennum en frá 2002-2015 starfaði hún hjá Reykjavíkurborg sem frístundaráðgjafi og verkefnastjóri. Auk þess að hafa verið stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hera hefur mikla reynslu af því að valdefla og leiðbeina hópum og einstaklingum og ná fram sköpunarkrafti og leikgleði. Hún hefur óbilandi trú á því að handavinna í hóp hafi heilandi mátt sem er töfrum líkastur.