Á bak við Textíl Barinn

Saga sem hófst með arfleifð

Þegar Hrafnhildur fór yfir garn og efni úr dánarbúi móður sinnar, kom spurningin óvænt: „Hvert á allt þetta fallega gull að fara?"

Hún gat ekki sett þetta í ruslið. Það var of mikið í þessum þráðum, minningar, handverk, ást. Og hún vissi að hún var ekki ein um þessa tilfinningu.

Tvær frænkur með eina hugmynd

Hrafnhildur og Hildigunnur kynntust við nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík en þær eru líka frænkur. Kannski er það í blóðinu, þessi ást á textíl og sköpun. Saman fóru þær að spinna hugmyndina,  hvað ef til væri staður þar sem endurnýttur textíl fengi nýtt líf  og nýjan eigandur?

Við sjáum vandann og lausnina

Textílsóun er eitt stærsta umhverfismál samtímans. Við vitum það öll, en hvað gerum við? Textíl Barinn er svarið okkar. Ekki bara staður til að finna gersemar, heldur staður þar sem garn, efni, tæki og tól til textílvinnslu fara úr einni hönd í aðrar, í stað þess að enda á urðunarstað.

Velkomin í Textíl Barinn

Hér er textíll með sögu. Við hlökkum til að hann verði hluti af þinni. 🧵