Textíl Barinn

Hvað er Textíl Barinn

Textíl Barinn er verslun og hönnunarstúdíó þar sem áður elskaður textíll fær nýtt líf og nýja sögu.

Hjá Textíl Barnum mætast handverk, hönnun, samfélag og góðar stundir. Við erum staður til að sýna og skapa, lifandi samfélag fyrir alla sem elska textíl, hönnun og prjónaskap eða hvað það er sem þú vilt gera með textíl, hvort sem þú ert algjör byrjandi eða gamalreyndur meistari.

Hugmyndin okkar er einföld: Að búa til hlýlegan og hvetjandi stað þar sem fólk getur komið saman, lært eitthvað nýtt og leyft sköpunargleðinni að njóta sín.

Gamli þræðir, nýtt framhaldslíf. Áður elskaður textíll í nýju ljósi hjá Textíl Barnum

Við stöllurnar hjá Textíl Barnum bjóðum upp á fjölbreytt og skapandi námskeið til þess að veita fólki innblástur hvernig hægt er að nota endurnýttan textíl á fjölbreyttan hátt. Við leggjum mikið upp úr því að skapa notalega stemningu þar sem sköpunarflæðið fær að taka völdin! Við lofum svo sannarlega stanslausu textíl stuði.

List, námskeið og áður elskaður textíll