Textílbarinn tekur þátt í THREADs! Við erum ótrúlega stolt af því að taka þátt í alþjóðlega hringrásarverkefninu THREADs (Reimagined Resources) í samstarfi við Textílmiðstöð Íslands og hönnuði á Norðurslóðum. Verkefnið snýst um að gefa textíl sem kominn er á endastöð nýtt líf með sjálfbærni og nýsköpun að leiðarljósi. Fylgist með ferlinu hjá okkur á næstu mánuðum þar sem við endurhugsum textíl framtíðarinnar!